Reiknistofa í veðurfræði sinnir öflugu rannsóknar- og þróunarstarfi. Áhersla hefur verið lögð á hermun breytileika veðurs í flóknu landslagi. Með nútíma veðurlíkönum, sem keyrð eru á öflugum tölvueykjum, má spá fyrir úrkomu, vindi og hita með sífellt meiri nákvæmni og æ lengra fram í tímann.
Starfsmenn hafa gefið út fjölmargar greinar, flutt fyrirlestra, haldið námskeið, skrifað hugbúnað og fleira sem tengt er veðurfræði, veðurspám og veðurfari. Hér er hægt að nálgast efnið eða vísanir í það.
Endurbirting er háð leyfi höfundar.



