Fréttir
15. ágúst 2010
Reiknistofa í veðurfræði hefur unnið að þróun sérsniðinnar veðurþjónustu fyrir björgunar- og leitaraðila síðastliðinn 2 ár. Þjónustan hefur fengið nafnið SARWeather og gefur björgunaraðilum tækifæri á að nálgast sérsniðna háupplausnarveðurspá fyrir hvaða stað sem er í heiminum. Þrátt fyrir að þjónustan sé ekki að fullu tilbúin hefur hún spurst út og hafa hamfarastofnanir á vegum Sameinuðu þjóðanna sent Reiknistofunni beiðni um aðgang að veðurspám fyrir flóðasvæðin í Pakistan. Reiknistofunni er bæði ljúft og skylt að verða við þessu og vonum við að þetta verði til þess að auðvelda aðilum sem starfa að leit og björgun á svæðinu.
1. ágúst 2010
Glöggir notendur Belgings hafa eflaust tekið eftir að veðurspár byggðar á GFS gögnum uppfærðust ekki í rúman sólarhring. Stafaði þetta af því að aðal gagnaþjónn Bandarísku veðurstofunnar - NOAA (http://nomads.ncep.noaa.gov) hefur verið óaðgengilegur frá 31. júlí. Starfsmenn Belgings hafa nú "tengt fram hjá" og eru gögn sótt á annan vefþjón. Sá böggull fylgir þó skammrifi að við höfum eingöngu aðgang að veðurgögnum sem ná tvo sólarhringa fram í tímann. Sökum þessa getum við ekki reiknað veðurspár lengra fram í tímann en sem þessu nemur. Er beðist forláts á þessu, við munum að sjálfsögðu reikna spár lengra fram í tímann um leið aðalgagnaþjónn NOAA kemst aftur á rétt ról.

Aðsóknarmet var slegið á Belgingi í nýliðinni viku samkvæmt vefmælingu Modernus en gamla metið var frá því í október 2009. Þá gekk yfir landið mikið óveður en í dag er skýringin tæplega óveðurtengt enda fádæma veðurblíða á öllu landinu. Alls voru heimsóknirnar á vefinn 32.047 vikuna 5. til 12. júlí 2010.
16. maí 2010
Belgingur/Reiknistofa í veðurfræði hlaut í dag styrk frá Umhverfis- og orkurannsóknasjóði Orkuveitu Reykjavíkur. Í þessu rannsóknaverkefni verður leitast við að skapa grundvöll fyrir aukinni hagkvæmni í rekstri Orkuveitunnar með bættum veðurspám.
28. apríl 2010
Belgingur/Reiknistofa í veðurfræði hefur nýlega uppfært veðurvefinn Belging. Meðal nýnæmis eru veðurspár með 1km reikniupplausn fyrir Eyjafjallajökul og nágrenni og veðurspár fyrir Viktoríuvatn í Afríku. Nánar má lesa um tilurð þeirra veðurspáa á vef Þróunarsamvinnustofnunar Íslands.
15. apríl 2010
Belgingi/Reiknistofu í veðurfræði voru í dag afhent verðlaun fyrir bestu markaðsáætlanirnar við útskrift í verkefninu Útflutningsaukning og hagvöxtur (ÚH) sem Útflutningsráð Íslands stendur að í samvinnu við Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins og Félag kvenna í atvinnurekstri. Nánar má lesa um verkefnið og verðlaunin á vef Útflutningsráðs.
2. apríl 2010
Belgingur/Reiknistofa í veðurfræði hefur verið valið til þátttöku á Seed Forum Iceland sem haldið verður 9. apríl 2010. Vænlegustu fyrirtækin með áhugaverðustu vörurnar eru valin til að kynna sig á þessari ráðstefnu en hana sækja aðilar sem horfa til nýsköpunnar sem og aðilar sem stýra fjárfestingasjóðum, fjárfestar og stefnumótandi aðilar.
27. mars 2010
Nú hefur SARWeather fengið sína eigin heimasíðu, www.sarweather.com og áætlað er að varan verði fullbúin til sölu í október 2010. SARWeather er sérsniðið veðurspától fyrir björgunar- og leitaraðila þar sem notandinn sjálfur skilgreinir spásvæðið og pantar háupplausnar veðurspá í gegnum vefviðmót.
22. mars 2010
Færeyingar hafa tekið Belgingi opnum örmum. Nú er svo komið að Færeyjaspá Belgings er komin í 4. sæti yfir mest sóttu síðurnar á www.belgingur.is en vefurinn fær um 15.000 heimsóknir á viku. Rúmt ár er síðan spárnar voru settar inn sem hluti af þjónustunni en hún hefur aldrei verið auglýst sérstaklega og því enn ánægjulegra að sjá hversu útbreidd notkunin er orðin hjá frændum okkar.
19. janúar 2010
Hjálparbeiðni barst um miðjan janúar frá björgunaraðilum sem voru að störfum á Haiti í kjölfar hörmulega jarðskjálftans. Þörf var á nákvæmari veðurspá fyrir svæðið. Reiknistofa í veðurfræði brást skjótt við og á 2 klst. var komin háupplausna veðurspá fyrir Haití á vefinn. Belgingur.is hefur haldið áfram að birta veðurspárnar fyrir björgunaraðila þótt rústabjörgunarsveitin okkar íslenska sé komin heim.
Breska veðurstofan fékk sambærilega beiðni til sín og leysti málið á 80 klst.
Fljótlega verður mögulegt að stytta þennan tíma enn frekar þegar SARWeather spákerfið verður tekið í notkun. SARWeather hefur verið samstarfsverkefni Reiknistofu í veðurfræði, Almannavarnadeildar RLS, Landsbjargar, IO og Sjá viðmótsprófana.
6. október 2009
Menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, opnaði í gær Gagnatorg veðurupplýsinga. Á Gagnatorginu má með einföldum hætti nálgast allar veðurathuganir Veðurstofu Íslands sem skráðar eru í gagnagrunna hennar.Þessar athuganir taka til meira en 200 veðurstöðva víðsvegar um landið og ná í sumum tilvikum allt aftur til ársins 1931.
Reiknistofa í veðurfræði / Belgingur og DataMarket standa að þróun og rekstri Gagnatorgsins. "Við erum sannfærð um að bætt aðgengi að þessum gögnum á eftir að hafa margvísleg jákvæð áhrif í för með sér", segir Ólafur Rögnvaldsson, framkvæmdastjóri Reiknistofunnar. "Gagnatorgið gerir fræðimönnum, námsmönnum og áhugamönnum um veðurfar mun hægara um vik að nálgast þessar upplýsingar en hingað til hefur verið og við vonumst til að sjá mun stærri hóp vinna með og nýta þessi gögn en áður." Þannig sér Ólafur til dæmis fyrir sér að nemendur muni nýta gagnatorgið til að fræðast um veðurfar í sinni heimabyggð og þróun þess undanfarna áratugi. Með tímanum stendur jafnframt til að nemendur og aðrir áhugamenn um veðurathuganir geti deilt sínum eigin mælingum með öðrum með hjálp Gagnatorgsins.
"Það sem okkur þykir þó mest spennandi við þennan opna aðgang er það sem við höfum ekki hugmyndaflug til að sjá fyrir" bætir Ólafur við, "nýsköpun, uppgötvanir eða skemmtileg framsetning sem notendur eiga eftir að láta sér detta í hug þegar gögnin eru orðin svona aðgengileg."
Notendur vefsins geta valið veðurstöðvar á korti eða flett þeim upp í lista, hakað við þær mælingar sem þeir hafa áhuga á að sjá og kallað þær fram fyrir valið tímabil. Gögnin má svo skoða hvort heldur er sem töflu eða á myndriti eða hala þeim niður til frekari úrvinnslu til dæmis í töflureikni á borð við Excel.
15. september 2009
Reiknistofa í veðurfræði er í hópi 8 fyrirtækja sem valin hafa verið til þátttöku í ÚH verkefni Útflutningsráðs.
22. febrúar 2009
Belgingur gefur nú út veðurspár fyrir Færeyjar og samhliða því hefur vefurinn verið þýddur á færeysku. Frétt um þetta birtist á mbl.is og vonandi nýtast spárnar frændum jafnvel og notendum hér á Íslandi. Sjá einnig frétt á mbl.is.