Endurgreiðsluskilmálar
Skil eða skipti á vöru
Viðskiptavinir okkar hafa 14 daga frá því samningur kemst á til að hætta við kaupin á ógallaðri vöru að því tilskildu að þeir hafi ekki notað vöruna, varan sé heil, í upprunalegum umbúðum, verðmiðar áfastir og neðangreindar upplýsingar séu sendar á netfangið verslun@riverstore.is :
Nafn.
Heimilisfang svo varan skili sér rétt.
Netfang og sími.
Greiðslukvittun sem fylgdi upphaflegum kaupum.
Ástæða fyrir skilum.
Ósk um endurgreiðslu/aðra vöru.
Ósk um sendingarmáta(ef við á).
Ef greitt var með netgíró þarf að taka það fram; senda kennitölu og einnig kröfunúmer er nauðsyn svo hægt sé að bakfæra.
Sé nánari upplýsinga þörf mun seljandi hafa samband við kaupanda.
Skil jólagjafa er til 31.desember.
Varan er endurgreidd að fullu við fyrsta tækifæri og alltaf innan 14 daga eftir að henni er skilað ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt. Vilji kaupandi skipta vörunni í aðra vöru sem er til á lager er jafnframt hægt að óska eftir nýrri sendingu. Kostnaður við endursendingu og nýja sendingu vöru vegna skipta á ógallaðri vöru er á ábyrgð og kostnað viðskiptavinar. Ef viðskiptavinur endursendir og skilar vöru án þess að greiða fyrir sendingarkostnaðinn verður hann dreginn frá keyptri upphæð. Ef vara reynist vera gölluð skal kaupandi tilkynna seljanda um gallan. Eftir að seljandi hefur staðfest að um galla er að ræða fær kaupandi afhenta nýja vöru. Sé vara ekki til fær kaupandi vöruna endurgreidda eða aðra vöru í staðin.
Skilyrði er að skrá pakkann svo hann týnist ekki hjá Póstinum. Ef pakki týnist sem sendur var til baka þá er það á ábyrgð kaupanda.
Ekki er hægt að skila eða skipta vörum sem keyptar eru á útsölu/afslætti/outlet.
Um rétt kaupanda við skila að öðru leyti og rétt hans til skila á gallaðri vöru fer eftir lögum um neytendasamninga nr. 16/2016, lögum um lausafjárkaup nr. 50/2000 og eftir atvikum lögum nr. 48/2003 um neytendakaup.
