Hoka Speedgoat 7, Kvenna
Speedgoat 7 er geitin! Vinsælasti utanvegaskórinn frá Hoka. Frábær fjöðrun með nýjum, umhverfisvænum og mjög léttum SCF (SUPER CRITICAL FOAM) miðsóla með frábæru viðbragði. Mjög góð ending og sólinn verður ekki samanþjappaður eftir hlaup. Fjöðrunin hjálpar til við að ýta þér upp aftur.
Skórinn er mikið endurnýjaður.
ATH - litlar stærðir (mælum með að taka 1/2-1 stærð stærra en vanalega)
Eiginleikar
- 5 mm drop - þyngd 235/275 gr.
- Hámarks MetaRocker tækni þannig að skórinn rúllar þér áfram í skrefinu og nánast hleypur fyrir þig.
- Vibram megagrip sóli með mjög góðu gripi. 5 mm takkar undir sóla sem snúa í rétt til að auka gripið á hvaða undirlagi sem er.
- Tungan er þunn og mjúk og leggst vel að fæti.
- Gott snið sem heldur vel utan um fótinn. Kraginn utan um hælinn er vel styrktur en er jafnframt mjög mjúkur. Þétt snið á kraganum hindrar að grjót fari ofan í skóinn.
- Festingar fyrir ökklahlíf.






